Fjölskylda Ara Braga og Dórótheu stækkar

Ari Bragi Kárason og Dóróthea Jóhannesdóttir ásamt dóttur sinni, Ellen …
Ari Bragi Kárason og Dóróthea Jóhannesdóttir ásamt dóttur sinni, Ellen Ingu.

Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og Dóróthea Jóhannesdóttir eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Ellen Ingu sem er þriggja ára gömul.

Ari Bragi og Dóróthea kynntust fyrir rúmum áratug í gegnum frjálsar íþróttir en þau eiga bæði glæstan feril að baki í íþróttinni. Þau eru nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ari Bragi spilar með fremstu jazztónlistarmönnum Danmerkur og Dóróthea starfar sem svæðissölustjóri fyrir danska hönnunarfyrirtækið Design Letters.

„Fjölskyldan stækkar“

Fjölskyldan tilkynnti gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram með yfirskriftinni: „Fjölskyldan stækkar“ en með færslunni birtu þau fallega mynd af fjölskyldunni þar sem Ellen Inga heldur á sónarmynd og virðist alsæl yfir því að verða stóra systir.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert