Bessi og Sara Lind gáfu dótturinni nafn

Bessi Jóhannsson og Sara Lind Teitsdóttir gáfu dóttur sinni nafn …
Bessi Jóhannsson og Sara Lind Teitsdóttir gáfu dóttur sinni nafn á dögunum. Skjáskot/Instagram

Sara Lind Teitsdóttir, eigandi Noel Studios, og Bessi Jóhannsson eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 23. október síðastliðinn. Þau gáfu dóttur sinni nafn á dögunum og deildu því með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum. 

Stúlkan fékk nafnið Nótt Bessadóttir, en þau tilkynntu nafnið með sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau birtu fallegar myndir af dóttur sinni.

Nótt er fyrsta barn Söru Lindar og Bessa saman, en fyrir á Sara Lind soninn Leon Myrkva sem kom í heiminn 2. september 2020. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert