Paris hefur eignast London

Paris Hilton er orðin tveggja barna móðir.
Paris Hilton er orðin tveggja barna móðir. AFP/Michael Tran

Hótelerfinginn og athafnakonan, Paris Hilton, og eiginmaður hennar Carter Reum eignuðust sitt annað barn á dögunum. Hilton tilkynnti óvæntu gleðitíðindin á Instagram-síðu sinni á sjálfan þakkargjörðardaginn. Fyrir eiga hjónin soninn Phoenix sem þau eignuðust með aðstoð staðgöngumóður í upphafi þessa árs.

Hilton birti mynd af bleiku ungbarnasetti með áletruninni London og bangsakanínu, en hún hefur lengi talað um að vilja dóttur sem bæri nafnið London. 

„Þakklát fyrir stúlkuna mína,“ skrifaði Hilton við færsluna. 

View this post on Instagram

A post shared by Paris Hilton (@parishilton)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert