María og Jón Daði eiga von á öðru barni

María Ósk Skúladóttir og Jón Daði Böðvarsson eiga von á …
María Ósk Skúladóttir og Jón Daði Böðvarsson eiga von á öðru barni saman.

Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson og viðskiptafræðingurinn María Ósk Skúladóttir eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Sunnevu Sif.

Jón Daði og María tilkynntu gleðifréttirnar í sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallega myndaseríu. „Þrjú verða fjögur, apríl 2024.“

Fyrri meðgangan ekki sú auðveldasta

Á síðasta ári ræddi María um móðurhlutverkið, meðgönguna og fæðingu dóttur þeirra í einlægu viðtal á fjölskylduvef mbl.is. Meðgangan var ekki sú auðveldasta fyrir Maríu, en hún greindist með hypereeisi gravidarum (HG) sem felur í sér mikla ógleði og uppköst, langt um fram það sem talið er eðlilegt. Hún jafnaði sig þó eftir 20. viku meðgöngunnar. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by MARÍA ÓSK (@mariaosk22)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert