Íslenskar stjörnur fjölguðu sér árið 2023

Frægir Íslendingar eignuðust börn á árinu.
Frægir Íslendingar eignuðust börn á árinu. Samsett mynd

Íslend­ing­ar héldu áfram að fjölga sér á ár­inu sem er að líða og stjörn­urn­ar létu sitt ekki eft­ir liggja til að fjölga mann­kyn­inu. Á meðal þeirra sem eignuðust börn á árinu sem eru að líða eru íþróttamenn, stjórnmálafólk og tónlistarfólk. 

Aron Pálmarsson og Rita Stevens

Hand­bolta­stjarn­an Aron Pálm­ars­son og kær­asta hans, Rita Stevens, eignuðust sitt fyrsta barn sam­an þann 25. nóvember. 

Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra

Knatt­spyrnumaður­inn Garðar Gunn­laugs­son og Fann­ey Sandra Al­berts­dótt­ir, förðun­ar­fræðing­ur og einkaþjálf­ari, eignuðust barn í nóvember. Dreng­ur­inn er annað barn Garðars og Fann­eyj­ar sam­an, en fyr­ir á Garðar fjög­ur börn úr fyrri sam­bönd­um.

Birnir og Vaka 

Tón­list­armaður­inn Birn­ir Sig­urðar­son og Vaka Njáls­dótt­ir, sem vinn­ur í viðskiptaþróun fyr­ir Nova, eignuðust sitt fyrsta barn í byrjun nóvember. 

Tinna Alavis og Unnar

Áhrifa­vald­ur­inn og fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing­in Tinna Ala­vis og Unnar Bergþórsson, hótelstjóri á Hótel Húsafelli, eignuðust sitt annað barn. 

Þorbjörn og Ása

Þor­björn Þórðar­son, lögmaður og fyrr­ver­andi fréttamaður, og eig­in­kona hans, Ása Dag­mar Jóns­dótt­ir, eignuðust sitt annað barn á árinu. 

Bjarki Már og Unnur Ósk

Hand­boltamaður­inn Bjarki Már Elís­son og eig­in­kona hans, Unn­ur Ósk Steinþórs­dótt­ir, eignuðust dótt­ur í september. Stúlk­an er annað barn þeirra Bjarka og Unn­ar. 

Andrés og Ása Laufey

Hjón­in Andrés Jóns­son, al­manna­teng­ill og eig­andi Góðra sam­skipta, og séra Ása Lauf­ey Sæ­munds­dótt­ir prest­ur eignuðust dótt­ur í haust. 

Margrét Lára og Einar

Mar­grét Lára Viðars­dótt­ir, knatt­spyrn­u­stjarna og sál­fræðing­ur, og Ein­ar Örn Guðmunds­son sjúkraþjálf­ari eignuðust dótt­ur í sumar. Stúlk­an er fjórða barn hjón­anna sem eiga fyr­ir þrjá drengi.

Róbert Wessman og Ksenia

Ró­bert Wessman, stjórn­ar­formaður og for­stjóri Al­votech, og eig­in­kona hans, Ksenia Shak­hmanova, eignuðust dóttur í vor. 

Katrín Halldóra og Hallgrímur

Leik­kon­an Katrín Hall­dóra Sig­urðardótt­ir og tón­list­armaður­inn Hall­grím­ur Jón Hall­gríms­son eignuðust dótt­ur 5. júlí. 

Hörður og Hildur

Hörður Ægis­son einn af stofn­end­um Inn­herja á Vísi.is og Hild­ur Þór­ar­ins­dótt­ir lögmaður á Jur­is, eignuðust son þann 4. júlí.

Hildur og Jón

Hild­ur Björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, eignaðist sitt fjórða barn í sumar þegar dótt­ir henn­ar og Jóns Skafta­son­ar kom í heim­inn.

Arnhildur Anna og Aldreð Már

Kraft­lyft­inga­kon­an og þjálf­ar­inn, Arn­hild­ur Anna Árna­dótt­ir og kær­asti henn­ar, Al­freð Már Hjaltalín heils­unudd­ari, eignuðust stúlku 1. júní síðastliðinn.

Hildur og Gísli

Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, alþing­ismaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, eignaðist sitt fyrsta barn þann 6. apríl með unn­usta sín­um Gísla Árna­syni, ráðgjafa hjá Aton.JL.

Lína Móey og Sigurður

Lína Móey Bjarna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Leigu­manna ehf, eignaðist stúlku­barn með sam­býl­is­manni sín­um Sig­urði Karls­syni, fram­kvæmda­stjóri iCert, hinn 7. sept­em­ber.

María og Ingileif

María Rut Krist­ins­dótt­ir, kynn­ing­ar­stýra UN Women, og Ingi­leif Friðriks­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjá Ketchup Creati­ve, eignuðust dótt­ur í apríl. Þær greindu frá því á fé­lags­miðlin­um Face­book.

Kristrún og Einar

Kristrún Frosta­dótt­ir formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og eig­inmaður henn­ar, Ein­ar Berg­ur Ing­ólfs­son viðskipta­fræðing­ur, eignuðust dótt­ur í febrúar. 

Frosti og Helga Gabríela

Fjöl­miðlamaður­inn Frosti Loga­son og eig­in­kona hans, kokkurinn Helga Gabrí­ela Sig­urðardótt­ir, eignuðust dóttur í sumar. Hún hlaut nafnið Birta, en fyr­ir eiga hjón­in syn­ina Mána og Loga.

Kolbeinn og Kristín 

Fót­boltamaður­inn Kol­beinn Sigþórs­son og Krist­ín Helga Þor­steins­dótt­ir eignuðust dótt­ur hinn 1. fe­brú­ar síðastliðinn.

Albert og Guðlaug 

Knatt­spyrnumaður­inn Al­bert Guðmunds­son og kær­asta hans, Guðlaug Elísa Jó­hanns­dótt­ur, eignuðust dótt­ur hinn 16. fe­brú­ar. Fyrir áttu þau einn son. 

Adam og Ástrós

Dans­ar­inn og áhrifa­vald­ur­inn, Ástrós Trausta­dótt­ir, og Adam Karl Helga­son, fram­kvæmda­stjóri Zolo, eignuðust dótt­ur hinn 4. fe­brú­ar. 

Snorri og Nadine

Snorri Másson fjölmiðlamaður og Nadine Guðrúnu Yag­hi, for­stöðumaður hjá Play, eignuðust sitt fyrsta barn saman í sumar. Fyrir átti Nadine eitt barn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert