Sonur Halle Bailey og DDG fæddur

Bailey er 23 ára.
Bailey er 23 ára. AFP/Frederic J. Brown

Sonur söng- og leik­kon­unnar Halle Bailey og rapparans Darryl Dwayne Granberry Jr., sem gengur undir listamannsnafinu DDG, er kominn í heiminn.

Um er að ræða fyrsta barn parsins. Bailey er 23 ára en DDG 26 ára. Bailey greinir frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlinum Instagram.

Bailey er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Ariel í kvik­mynd­inni Litla haf­meyj­an. Kvikmyndin kom út í fyrra og vakti þó nokkra athygli, meðal annars fyrir það að svört kona lék Ariel.

View this post on Instagram

A post shared by Halle Bailey (@hallebailey)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert