Tvíburar Kára og Aldísar komnir í heiminn

Kári Steinn Karlsson og Aldís Arnardóttir eignuðust tvíburadrengi þann 8. …
Kári Steinn Karlsson og Aldís Arnardóttir eignuðust tvíburadrengi þann 8. janúar. Skjáskot/Instagram

Hlaupaparið Kári Steinn Karlsson og Aldís Arnardóttir eignuðust tvíburadrengi 8. janúar síðastliðinn. Fyrir eiga þau tvo drengi sem eru Arnald sem er sex ára og Eystein sem er þriggja ára. 

Kári á að baki glæst­an hlaupa­fer­il og er einn far­sæl­asti hlaup­ari lands­ins, en hann keppti meðal ann­ars í maraþon­hlaupi á Ólymp­íu­leik­un­um í Lund­ún­um árið 2012. Al­dís er yf­ir­maður versl­un­ar­sviðs 66° Norður, en hún hef­ur tekið þátt í ýms­um hlaupa­keppn­um hér­lend­is og stýrt hlaupa­hóp­um hjá World Class.

Aldís deildi gleðifregnunum í færslu á Instagram. „Teitur Örn og Högni Karl mættu í heiminn þann 8. janúar eftir tæplega 35 vikna meðgöngu og fullkomnuðu þar með strákahópinn okkar. Báðir hraustir og flottir, um 11 merkur og 47 cm og almennt bara alveg eins að mati okkar foreldranna,“ skrifaði hún við fallega mynd af drengjunum. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert