Barðist við tárin þegar hann ræddi um yngsta barn sitt

Robert De Niro og Tiffany Chen.
Robert De Niro og Tiffany Chen. AFP

Robert De Niro barðist við tárin í nýlegu viðtali þegar hann ræddi um yngstu dóttur sína, hina níu mánaða gömlu Giu. Hann eignaðist sjöunda barn sitt í byrjun maí á síðasta ári ásamt kærustu sinni, Tiffany Chen. Stórleikarinn, sem fer með hlutverk í Óskarstilnefndu kvikmyndinni Killers of the Flower Moon, varð fyrst faðir árið 1971. 

De Niro ræddi við blaðamann AARP (e. The American Association of Retired Persons) um föðurhlutverkið á níræðisaldri. „Það er einfaldlega dásamlegt,“ sagði leikarinn þegar hann var spurður um hvernig það væri að eiga lítið barn. 

„Allt sem ég hef áhyggjur af hverfur á augabragði um leið og ég sé hana,“ sagði De Niro þegar hann ræddi um kornunga dóttur sína og Chen.

Leikarinn viðurkenndi að hann vissi ómögulega hvað framtíðin bæri í skauti sér þar sem hann er þegar orðinn þetta fullorðinn, en De Niro sagðist kjósa að einbeita sér að því að vera í núinu. „Þegar hún verður eldri, hver veit? En þetta dásamlega augnaráð,“ sagði leikarinn þegar augu hans fylltust af tárum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert