Love is Blind-stjörnur eiga von á barni

Brennon og Alexa Lemieux eiga von á sínu fyrsta barni …
Brennon og Alexa Lemieux eiga von á sínu fyrsta barni saman. Skjáskot/Instagram

Love is Blind-stjörnurnar Brennon Lemieux og Alexa Lemieux eiga von á sínu fyrsta barni saman. Hjónin kynntust í þriðju þáttaröð raunveruleikaþáttanna Love is Blind á streymisveitunni Netflix.

Hjónin deildu gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á Instagram og fóru sama dag í viðtal við tímaritið People þar sem þau sögðu frá aðdraganda þungunarinnar. Þau komust að því að þau ættu von á barni í nóvember 2023, en þá höfðu þau verið að reyna í næstum eitt og hálft ár. 

„Ég fór í gegnum nokkrar frjósemismeðferðir og ekkert virkaði. Ég var mjög kvíðin fyrir því að kannski myndum við aldrei geta eignast börn,“ sagði hún og bætti við að henni liði eins og hún hefði fæðst á þessari jörð til að verða móðir og því hafi þetta tekið mikið á hana. 

Þakklát þrátt fyrir uppköst og ógleði

Í viðtalinu segir Alexa einnig frá því að meðgangan hafi ekki verið sú auðveldasta hingað til, en til að byrja með svaf hún í rúma 20 tíma á dag, fékk lungnabólgu og glímir nú við mikla ógleði og brjóstsviða. 

„Eftir allt sem ég hef upplifað er ég svo þakklát fyrir að vera ólétt. Jafnvel þegar ég er að kasta upp, þá hugsa ég: „Mig langaði í þetta. Þetta er magnað. Ég er svo ánægð að vera hér“,“ bætti hún við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert