Eva Laufey lét mynda óléttukúluna

Eva Laufey Kjaran verður brátt þriggja barna móðir.
Eva Laufey Kjaran verður brátt þriggja barna móðir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson eiga von á sínu þriðja barni á næstu mánuðum. Eva Laufey gerði því eins og margar verðandi mæður, kíkti í myndatöku og heimsótti hún Írisi Dögg Einarsdóttur ljósmyndara, en sú gerði sér lítið fyrir og fangaði fegurð óléttukúlunnar og ljóma hinnar verðandi móður.

Eva Laufey birti einstaklega fallega ljósmynd á Instagram úr tökunni. „Lillan í bumbu stækkar og stækkar,” skrifaði hún við færsluna.

Hjónin til­kynntu gleðifregn­irn­ar með fal­legri færslu á In­sta­gram í nóvember.

„Ham­ingj­an er hér. Í maí bæt­ist í hóp­inn okk­ar og við get­um ekki beðið,“ var skrifað við fal­lega mynd af dætr­um þeirra sem héldu á són­ar­mynd.

Eva Laufey og Har­ald­ur byrjuðu sam­an fyr­ir rúm­um sautján árum og hafa verið gift í sjö ár, en þau gengu í það heil­aga við fal­lega at­höfn í Akra­nes­kirkju hinn 23. júlí 2016. Fyr­ir eiga þau tvær dæt­ur, þær Ingi­björgu Rósu og Krist­ínu Rann­veigu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda