Öskudagurinn er uppáhaldsdagur barnanna. Þekktir Íslendingar klæddu börn sín í öskudagsbúninga og deildu myndum af börnum sínum í allra kvikinda líki.
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Alexandra Sif Nikulásdóttir, oftast kölluð Ale Sif, deildi mynd af dóttur sinni í öskubuskubúningi.
Tónlistarkonan Sigríður Thorlacius birt mynd af syni sínum sem var klæddur sem lítið apaskott.
Ástrós Rut Sigurðardóttir, eigandi verslunarinnar 4E, bauð upp á búningaveislu í tilefni öskudagsins.
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á fjögur börn. Hún birti öskudagsmynd af börnum sínum.
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann og lögfræðingurinn Kristín Eva Geirsdóttir deildu mynd af dætrum sínum í eins búningum.
Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir birt mynd af dóttur sinni sem persóna úr söngleiknum Frozen.
Hekldrottningin Elsa Harðardóttir birti mynd af dóttur sinni í hafmeyjubúningi með bleikt hár.
Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, förðunarfræðingur og einkaþjálfari, birtu mynd af sonum sínum í Batman-búningum.
Áhrifavaldurinn og verkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir birti mynd af dóttur sinni í búningi úr vinsælu kvikmyndasyrpunni Stjörnustríði.
Söngkonan Stefanía Svavarsdóttir birti skemmtileg mynd af börnum sínum, en þau klæddu sig upp sem Marvel-ofurhetjan Iron Man og Elsa drottningin af Arendelle.