Beckham ánægður með son Ramsay í íslenskri hönnun

Oscar Ramsay er töffari eins og pabbi sinn, kokkurinn Gordon …
Oscar Ramsay er töffari eins og pabbi sinn, kokkurinn Gordon Ramsay. Skjáskot/Instagram

Íslandsvinurinn og stjörnukokkurinn Gordon Ramsay fylgdist spenntur með Lundúna-maraþoninu um helgina ásamt syninum Oscar James. Sá stutti var klæddur í uppáhaldsúlpuna sína en hann sést gjarnan á Instagram-miðlum fjölskyldunnar í úlpunni Loka frá 66°Norður. 

Það var ekki bara faðirinn sem var ánægður með hinn fimm ára gamla Oscar Ramsay. Knattspyrnustjarnan David Beckham var líka ánægður og smelti „læki“ við myndirnar af stjörnubarninu. 

Rétt eins og faðirinn hefur Oscar Ramsay vakið athygli í fjölmiðlum. Þykir hann til að mynda nauðalíkur föður sínum þrátt fyrir aldursmuninn. 

Gordon Ramsay elskar Ísland

Gordon Ramsay er mikill áhugamaður um laxveiði og hefur komið reglulega til Íslands að renna fyrir laxi í Eystri Rangá, Tungulæk við Kirkjubæjarklaustur, Norðurá í Borgarfirði svo fátt eitt sé nefnt. Hann hefur einnig verið duglegur að prófa íslenska veitingastaði. Síðasta sumar hrósaði hann veitingastaðnum OTO til að mynda í hástert.  Á ferðum sínum til Íslands hefur Ramsay einnig tekið upp matreiðsluþætti á Vestfjörðum.

View this post on Instagram

A post shared by Gordon Ramsay (@gordongram)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka