Pissaði í bleyju sonar síns í umferðinni

Tori Spelling á tösku eins og Mary Poppins og þar …
Tori Spelling á tösku eins og Mary Poppins og þar er meðal annars finna bleyjur sem nýtast við hin ýmsu tilefni. AFP/David Livingston

Það er ekki bara mikil umferð í Ártúnsbrekkunni. Það er svo mikil umferð í Kaliforníu í Bandaríkjunum að Beverly Hills 90210-stjarnan Tori Spelling tók til örþrifaráða og pissaði í bleyju sonar síns. 

Spelling segir að hún hafi verið stödd á hraðbraut þar sem er klikkuð umferð. „Ég er ekki að fara komast heim,“ sagðist Spelling hafa hugsað með sér þegar hún ákvað að pissa í bílnum.  Spelling greindi frá atvikinu í hlaðvarpsþætti sínum að því fram kemur á vef Page Six.  

„Svo ég bókstaflega teygði mig aftur í í Tori Poppins-töskuna mína og hugsaði góði guð, bara eitthvað. Ég fór í gegnum dótið og fann bleyju.“

Bleyjuna átti sonur hennar Beau sem er núna sjö ára en var á þessum tíma enn með bleyju. „Ég bókstaflega setti bleyjuna á mig og pissaði í bleyjuna hans Beau,“ sagði Spelling sem kann að bjarga sér. 

Tori Spelling.
Tori Spelling. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert