Íris Svava er orðin móðir

Íris Svava Pálmadóttir og sambýlismaður hennar Arnþór Fjalarsson eignuðust stúlku …
Íris Svava Pálmadóttir og sambýlismaður hennar Arnþór Fjalarsson eignuðust stúlku þann 3. maí síðastliðinn. Skjáskot/Instagram

Þroskaþjálfinn og áhrifavaldurinn Íris Svava Pálmadóttir og sambýlismaður hennar, Arnþór Fjalarson, eignuðust stúlku þann 3. maí síðastliðinn. Stúlkan er fyrsta barn parsins saman. 

Íris Svava hefur notið vinsælda á Instagram þar sem hún talar um jákvæða líkamsímynd og vill sýna að allir líkamar geti verið kynþokkafullir. 

„Þessi djúpa tæra ást og gleði“

Íris Svava og Arnþór tilkynntu komu dóttur sinnar með sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallegar myndir af stúlkunni. 

„Elsku stelpan okkar kom í heiminn 3. maí og var næstum 18 merkur. Orð ná ekki að lýsa tilfinningunum sem eru í gangi innra með okkur þessa dagana, þessi djúpa tæra ást og gleði sem við höfum aldrei upplifað áður. Mamma og pabbi elska þig meira en lífið sjálft og getum ekki beðið eftir að kynnast þér betur,“ skrifuðu þau í færslunni. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Íris Svava (@irissvava)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert