Eva Laufey svífur um á bleiku skýi

Það ríkir mikil hamingja á heimili fjölskyldunnar.
Það ríkir mikil hamingja á heimili fjölskyldunnar. Samsett mynd

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, svífur um á bleiku skýi þessa dagana.

Matargyðjan varð móðir í þriðja sinn á dögunum, þegar henni og eiginmanni hennar, Haraldi Haraldssyni, deildarstjóra Icelandair Cargo, fæddist stúlka. Sú hlaut nafnið Margrét Maren í höfuðið á konum sem eru þeim kærar.

Eldri dæt­ur hjón­anna heita Ingi­björg Rósa og Krist­ín Rann­veig.

Eva Laufey birti einstaklega fallega mynd af þeim mæðgum á Instagram Story og sagðist sko ekki þurfa að kvarta yfir lægðinni sem gengur nú yfir landið. 

„Haustlægðin er í góðu lagi með þessari. Sofa-drekka-kúra og endurtekið í sömu röð allan sólarhringinn er rútínan okkar þessa dagana,“ skrifaði Eva Laufey við myndina sem sýnir hana horfa ástaraugum á tæplega vikugamla dóttur sína. 

Eva Laufey tilkynnti um fæðingu stúlkunnar á Instagram-síðu sinni um helgina. Heillaóskum rigndi yfir fjölskylduna í kjölfarið.

Eva Laufey og Margrét Maren.
Eva Laufey og Margrét Maren. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert