Héldu partí fyrir dótturina þremur vikum eftir fæðingu

Sofia Richie og Elliot Grainge urðu foreldrar fyrir þemur vikum.
Sofia Richie og Elliot Grainge urðu foreldrar fyrir þemur vikum. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Sofia Richie og eiginmaður hennar, Elliot Grainge, eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 20. maí síðastliðinn. Þau tilkynntu gleðitfregnignar á samfélagsmiðlum og sögðu um leið frá því að stúlkan hafi fengið nafnið Eloise Samantha Grainge. 

Á dögunum blésu hjónin til glæsilegrar garðveislu þar sem þau fögnuðu fæðingu dótturinnar. Richie birti myndir úr veislunni á Instagram þar sem meðal annars var boðið upp á girnilegar veitingar og frumlega kokteila innan um glæsilegar skreytingar.

Richie og Grainge eru þekkt fyrir að fara alla leið þegar kemur að veislum, en þau héldu til að mynda stórglæsilegt brúðkaup á frönsku riveríunni í apríl 2023 og ótrúlega trúlofunarveislu árið á undan. 

Í veislunni voru glæsilegar skreytingar og nóg af blómum.
Í veislunni voru glæsilegar skreytingar og nóg af blómum. Skjáskot/Instagram
Gestir gæddu sér á ljúffengum veitingum á fallegum diskum frá …
Gestir gæddu sér á ljúffengum veitingum á fallegum diskum frá tískuhúsinu Dior. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert