Draumadama Írisar og Egils komin í heiminn

Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Egill Halldórsson.
Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Egill Halldórsson. Skjáskot/Instagram

Fyr­ir­sæt­an Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og at­hafnamaður­inn Eg­ill Hall­dórs­son eignuðust sitt fyrsta barn saman í lok júní þegar lítil stúlka kom í heiminn. 

„26.06.24,“ skrifaði parið í sameiginlegri færslu á Instagram. „Litla draumadaman okkar mætti í heiminn.“

Ásamt því að greina frá komu barnsins birtu þau myndir af barninu nýfæddu sem og af Írisi í fæðingunni. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar foreldrunum til hamingju með barnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert