Sonurinn er alveg eins

Sonurinn fékk hárið frá föður sínum.
Sonurinn fékk hárið frá föður sínum. Skjáskot/Instagram

Hollywood-leikarinn Mark Ruffalo er góður pabbi. Hann tók sig til á dögunum og óskaði syni sínum til hamingju með afmælið þrátt fyrir að sonurinn væri orðinn 23 ára. 

Það er augljós svipur með feðgunum þrátt fyrir að Ruffolo sé 56 ára og sonurinn Keen 23 ára. Ruffalo birti nokkrar gamlar myndir af syni sínum en einnig nýja mynd af sér með syni sínum. Þar sést vel hversu líkir þeir eru. Það er sérstaklega hárið sem kemur upp um erfðaefnið. 

„Til hamingju með afmælið Keen. Ég elska þig svo mikið og er svo stoltur af því sem þú hefur afrekað í ár. Haltu áfram,“ skrifaði Ruffalo þegar hann óskaði syni sínum til hamingju með afmælið. 

View this post on Instagram

A post shared by Mark Ruffalo (@markruffalo)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert