Vanessa Hudgens eignast sitt fyrsta barn

Leikkonan Vanessa Hudgens er orðin móðir 36 ára.
Leikkonan Vanessa Hudgens er orðin móðir 36 ára. AFP/JB Lacroix

Leikkonan Vanessa Hudgens, þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni High School Musical, og eiginmaður hennar Cole Tucker hafa eignast sitt fyrsta barn.

Nýbökuðu foreldrarnir sáust fara heim af Santa Monica sjúkrahúsinu í Kaliforníu í gær þar sem hjúkrunarkona aðstoðaði Hudgens að komast út í bíl í hjólastól. Allt bendir til að fæðingin hafi farið vel þar sem hjónin virtust vera á bleiku skýi.

Fjölmargir miðlar vestanhafs bíða eftirtekta eftir að heyra kyn barnsins og vita nákvæman fæðingardag barnsins.

Hugleiðslutími sem fór fram í gegnum fjarsamskiptaforritið Zoom leiddi parið saman en þau giftu sig í desember í fyrra.

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert