Opnar sig um móðurhlutverkið

Suki Waterhouse og Robert Pattinson eru afar ástfangin og ánægð …
Suki Waterhouse og Robert Pattinson eru afar ástfangin og ánægð með nýja krílið. Skjáskot/Instagram

Suki Waterhouse opnar sig um móðurhlutverkið í breska Vogue en hún og Robert Pattinson eignuðust sitt fyrsta barn saman fyrir þremur mánuðum.

„Hann er allt sem ég hafði vonast til,“ segir Waterhouse um Pattinson sem sagður er afar rólegur faðir. 

„Hann var þarna með mér, og líkt og allir feður, þá var hann mjög stressaður,“ segir Waterhouse. „En þrátt fyrir að vera almennt mjög stressuð týpa þá hefur hann verið mjög rólegur. Hann er faðirinn sem ég hafði dreymt um. Faðir og dóttir, þar er hin raunverulega ástarsaga.“

Waterhouse lýsir því einnig hvernig hún fann raunverulega ást eftir stormasama fortíð. Hún sér þó ekki eftir neinu en áður átti Waterhouse í sambandi við stjörnur á borð við Bradley Cooper.

„Ég myndi ekki breyta neinu. Jafnvel þegar hlutirnir voru virkilega erfiðir, þá leiddi þetta mig að ást sem er virkilega hrein.“

„Ég vakna á morgnana og mér líður mjög vel. Ég fer stundum niður á við en þannig er lífið. Ef maður ber ör sín með stolti þá getur maður byggt sér eitthvað betra. Það er markmiðið.“

Suki segir það erfitt að jafna sig á ástarsorg í sviðsljósi fjölmiðlanna en hún sé sterkari fyrir vikið.

„Núna er ég frekar sterk. En þegar eitthvað svona gerist fyrir framan alþjóð og sagan á bak við er dimm og erfið, manni líður ekki vel og getur ekki sagt sína hlið á málinu þá er það mjög einangrandi.“

„Það hefur tekið mig áratug af sjálfsvinnu til þess að geta haldið áfram með lífið.“

Suki Waterhouse og nýfædd dóttir hennar.
Suki Waterhouse og nýfædd dóttir hennar. Skjáskot/Instagram
Waterhouse á forsíðu breska Vogue.
Waterhouse á forsíðu breska Vogue. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert