Bandaríski sundkappinn og ólympíuverðlaunahafinn Michael Phelps á fjögur börn með eiginkonu sinni, Nicole Phelps. Öll börnin eru drengir en Phelps er sáttur með stelpuleysið.
Það er mikið að gera á stóru heimili en börnin eru átta ára, sex ára, fjögurra ára, og fimm mánaða. „Ég held að þetta sé komið,“ sagði Phelps í viðtali við E!. „Nicole mun segja þér hið sama, ég held að hún hafi viljað stelpu fyrir mig en við eigum Onyx,“ sagði Phelps.
Þegar hann talaði um Onyx átti hann við tík fjölskyldunnar sem er af tegundinni stóri dani. „Onyx er stelpan okkar, svo við eigum allt,“ sagði Phelps. „Við eigum fjóra stráka og frábæra stelpu núna.“