Alveg eins að eignast barn 48 ára

Kourtney Kardashian og Travis Barker eiga eitt barn saman.
Kourtney Kardashian og Travis Barker eiga eitt barn saman. AFP

Trommuleikarinn Travis Barker eignaðist sitt þriðja barn 48 ára þegar eiginkona hans, raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian, fæddi þeim son. Hann segir eins að eignast barn 48 ára og um þrítugt.  

„Það besta sem þú getur gert hvenær sem er á lífsleiðinni er að eignast barn,“ sagði Barker í viðtali við People. Hann segist hafa lært mjög mikið þegar stjúpdóttir hans kom inn í líf hans þegar hún var ungbarn. Svo eignaðist hann eldri börnin sín með aðeins tveggja ára millibili og þá fékk hann góða þjálfun. Þriðja barnið kom svo í heiminn í nóvember. 

Hann segir ekkert hafa breyst þrátt fyrir að 17 ár skilji barn númer tvö og þrjú að. „Þetta er bara eins gott og ég mundi,“ sagði Barker. 

„Ég elska að vera pabbi,“ sagði hann einlægur í viðtalinu. „Það er mitt helsta afrek, það er það skemmtilegasta sem ég geri á hverjum degi.“ 

Hann man vel hvað hann gerði þegar hann komst að því að hann væri að fara eignast sitt fyrsta barn sem er tvítugt núna. Hann fór út að hlaupa á hraðbrautinni. „Ég fékk þessa hvöt til þess að vera besta útgáfan af sjálfum mér, að vera heilbrigður og hugsa um sjálfan mig, ég held að ég hafi aldrei hætt því.“

Kourtney Kardashian og Travis Barker.
Kourtney Kardashian og Travis Barker. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert