Dagsferðir fyrir börnin skammt frá höfuðborginni

Skelltu þér í dagferð með börnin!
Skelltu þér í dagferð með börnin! Ljósmynd/Unsplash/Artem Kinaz

Margar fjölskyldur eru komnar í sumarfrí og sumum vantar eflaust hugmyndir að afþreyingu í grennd við höfuðborgina fyrir helgina. Fjölskylduvefur mbl.is tók því saman nokkrar spennandi dagsferðir sem ættu að hitta beint í mark hjá börnunum!

Lautarferð við Garðskagavita og halda á sjávardýrum í Sandgerði

Fyrir forvitin börn sem elska dýr er gaman að heimsækja Þekkingarsetur Suðurnesja í Sandgerði. Þar er frábær náttúrusýning þar sem má sjá lifandi sjávardýr og þau sem þora mega koma við þau. Einnig er að finna yfir 70 uppstoppuð dýr á sýningunni, þar á meðal risavaxinn rostung. Eftir sýninguna er tilvalið að skoða hinn tignarlega Garðskagavita í næsta bæ við og fara jafnvel í lautarferð í fjörunni við vitann.

Á Þekkingarsetri Suðurnesja meiga gestir koma við sjávarverurnar sem getur …
Á Þekkingarsetri Suðurnesja meiga gestir koma við sjávarverurnar sem getur verið frábær upplifun fyrir börnin! Ljósmynd/Pexelx/Mybrugh Roux

Hoppaðu um borð í víkingaskip og heilsaðu upp á skessuna í hellinum!

Á Reykjanesinu eru margar ævintýralegar afþreyingar í boði fyrir börn, en í Reykjanesbæ er víkingasafn þar sem meðal annars er hægt að fara um borð í víkingaskipið Íslending sem sigldi alla leið til Ameríku árið 2000. Þegar staðið er í skipinu er vel hægt að ímynda sér hvernig víkingarnir sigldu um höfin. Aðgengi er einnig gott fyrir fólk sem er í hjólastól eða á erfitt með gang.

Síðan er gaman að halda ævintýrinu áfram og heimsækja Skessuna í Svartahelli við smábátahöfnina í Gróf í Keflavík að kostnaðarlausu. Skessan er aðalsögupersóna ævintýrsins Sigga og skessan í fjallinu eftir Herdísi Egilsdóttur, en hún hefur gefið út 16 barnabækur um skessuna. Nýjasta sagan fjallar um það þegar skessan flutti til Suðurnesja þar sem má sjá hana í fullri stærð heima í hellinum sínum. Skessan kann hins vegar ekki mikla mannasiði og á það til að prumpa hátt þegar gestir eru í heimsókn!

Gönguferð á Þingvöllum og heimsækja dýrin á Slakka

Auðvelt er að fara með börnin í skemmtilega gönguferð um Þingvelli þar sem margar mismunandi gönguleiðir, mestmegnis á jafnsléttu, er að finna. Það getur verið mikil upplifun fyrir krakka að sjá Öxarárfoss, ganga yfir brýrnar sem eru nálægt Þingvallakirkju og sjá fallega náttúru ásamt fjölbreyttu dýralífi.

Eftir gönguna er hægt að keyra í um 35 mínútur til að heimsækja dýragarðinn Slakka, en þar er meðal annars hægt að sjá litla kettlinga og stundum hvolpa ásamt öðrum sætum dýrum.

Víkingaskipið Íslendingur.
Víkingaskipið Íslendingur. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson

Náttúrulaugin Guðlaug og Hoppland á Akranesi

Það er yndislegt að ylja sér í náttúrulauginni Guðlaugu og horfa yfir fjöruna og út á hafið en laugin er staðsett við grjótgarðinn í fjörunni við Langasand á Akranesi. Fyrir þá sem elska sjósund er tilvalið að taka kaldan sundsprett í sjónum og fara svo beint í hlýja laugina eftir á.

Fjölskyldur sem eru sérstaklega ævintýragjarnar geta gengið fjöruna að enda og skellt sér í Hoppland sem er skammt frá Guðlaugu. Hoppland býður hópum og einstaklingum að hoppa út í sjó í blautbúning af stökkpöllum sem eru allt að tíu metra háir! Það getur verið eflandi fyrir sjálfstraustið að ögra sér svolítið en oft myndast skemmtileg stemning þegar fjölskyldan tekst á við áskorun saman. Þjálfað og reynslumikið starfsfólk tekur á móti stökkvurum og halda uppi stemningunni á svæðinu.

Oft má klappa dýrunum í Slakka.
Oft má klappa dýrunum í Slakka. Ljósmynd/mbl.is

Gönguferð í Reykjadal og önnur afþreying í Hveragerði

Ungir og duglegir göngugarpar gætu gengið þrjá kílómetra að heita læknum í Reykjadal fyrir utan Hveragerði. Það getur verið einstök upplifun að fyrir börn að upplifa Ísland á algjörlega nýjan hátt og prófa að fara í heitan læk! Gott er að hafa í huga að aðeins lítill skjólveggur er til staðar til að skipta um föt sem er hluti af upplifuninni.

Fyrir þá sem treysta sér ekki í gönguna í Reykjadal er margt annað hægt að gera í Hveragerði. Til dæmis er sundlaugin í Laugaskarði mjög hugguleg og einnig er hægt að skella sér í sviflínuna Mega Zipline Iceland sem liggur yfir Svartagljúfur. Eftir fjörið er tilvalið að fá sér eitthvað gott í gogginn í mathöllinni eða á þeim fjölmörgu frábæru veitingastöðum sem Hveragerði hefur upp á að bjóða.

Hoppland er með aðstöðu á Akranesi. Hoppaðu ef þú þorir!
Hoppland er með aðstöðu á Akranesi. Hoppaðu ef þú þorir! Ljósmynd/Aðsend
Tilvalið að slaka á í heita læknum í Reykjadal úti …
Tilvalið að slaka á í heita læknum í Reykjadal úti í fallegri náttúru. Rax / Ragnar Axelsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert