Svona fékk hún barnið til að hætta að gráta í bílnum

Jacquie Ciccone og unga dóttir hennar fundu lausn á að …
Jacquie Ciccone og unga dóttir hennar fundu lausn á að eiga ánægjulegar bílferðir saman. Samsett mynd

Þau sem keyra reglulega með ungabarn í bílnum hafa líklega upplifað sárar bílferðir þar sem barnið hættir ekki að gráta. Það getur verið einmanalegt og erfitt að sjá ekki mömmu og pabba þar sem stóllinn snýr öfugt á við alla hina í einhverri vél sem hreyfist á ógnar hraða. Þá auðvitað láta þau heyra í sér, sum meira en önnur. 

Hin Bandaríska Jacquie Ciccone, sem er tveggja barna móðir, deildi ráði sem virkar fyrir ungu dóttur hennar á TikTok-aðgangi sínum en yfir 17 milljónir hafa séð myndbandið. 

Það þurfti ekki meira en mynd af Ciccone á A4 blað fyrir framan litlu stúlkuna. „Þegar barnið þitt hatar bílinn en elskar andlitið þitt,“ skrifar Ciccone við færsluna. 

Barnið virðist hæst ánægt með að sjá móður sína nálægt með bros á vör.  Myndbandi hefur vakið mikla hrifningu á TikTok en við færsluna hafa mörg skrifað að þau vildu óska þess að þau hefðu vitað af þessu fyrr.

Einnig virðist ráðið virka vel í barnapössun. „Ég er barnfóstra og ég sýni barninu mynd af móður sinni þegar það er pirringur í því. Þetta virkar líka þegar það er tími til að gefa barninu að drekka úr pelanum,“ skrifaði einn notandi við myndbandið.

@pumpedupmama1

When your baby hates the car seat but loves your face

♬ original sound - Jacquie Ciccone

 New York Post

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert