Gáfu fjórða barninu norrænt nafn

Reynolds og Lively voru afar glæsileg á frumsýningu kvikmyndarinnar.
Reynolds og Lively voru afar glæsileg á frumsýningu kvikmyndarinnar. DIMITRIOS KAMBOURIS

Kanadíski leikarinn Ryan Reynolds opinberaði nafn yngsta barns hans og leikkonunnar Blake Lively á frumsýningu kvikmyndarinnar Deadpool & Wolverine í New York á mánudag. 

Barnið, sem kom í heiminn snemma á síðasta ári, er fjórða barn leikarahjónanna og ber nafnið Olin. Nafnið er fornt norrænt nafn og hentar öllum kynjum. Ekki er vitað hvort fjórða barn Reynolds og Lively er drengur eða stúlka. Leikarahjónin eiga fyrir þrjár dætur, James, Inez og Betty, á aldursbilinu 4 til 10 ára. 

Að lokinni frumsýningu ofurhetjumyndarinnar steig Reynolds á svið ásamt leikurum og aðstandendum kvikmyndarinnar. Hann greip í míkrafón og þakkaði fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn í gegnum árin. Var það þá sem hann þuldi upp nöfn barna sinna. 

Reynolds og Lively kynntust árið 2010 við gerð kvikmyndarinnar Green Lantern. Parið gekk í hjónaband í september 2012. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert