Tvíburar Evu orðnir 15 ára

Eva Ruza og Sigurður Þór ásamt tvíburunum Marinu og Stanko.
Eva Ruza og Sigurður Þór ásamt tvíburunum Marinu og Stanko. Samsett mynd

Eva Ruza, skemmtikraftur og þáttastjórnandi á K100, fagnaði því í gær að fimmtán ár væru liðin frá því tvíburarnir hennar komu í heiminn. Eva og eiginmaður hennar, Sigurður Þór Þórsson, eignuðust tvíbura, Marinu Mist og Stanko Blæ, sumarið 2009. 

Í tilefni dagsins birti Eva fallega færslu á Instagram og skemmtilegt myndskeið sem sýnir tvíburana frá fæðingu til dagsins í dag.

„15 ár. 15 ár síðan heimurinn okkar Sigga stækkaði og þessi tvö mættu í allri sinni dýrð. Í gegnum augun þeirra höfum við fengið að sjá heiminn í allri sinni fallegu litadýrð, og boy hvað hann hefur verið fallegur, dramatískur, fyndinn, ógleymanlegur og skemmtilegur. Ég skil ekkert hvernig árin hafa liðið svona hratt því mér finnst ég ennþá finna litla klístraða putta snerta mig og litla blauta kossa kyssa mig ...

Að fá að vera mamma ykkar er fallegasta hlutverkið mitt. Í þessu hlutverki þarf ég enga glimmerkjóla, rauðan varalit eða hælaskó. Fyrir þetta hlutverk þarf ég bara að breiða út faðminn og sópa ykkur til mín og halda fast.  Takk fyrir að leyfa mér að lifa drauminn minn, að fá að vera mamma ykkar. Vonandi verður instagram ennþá á lífi eftir 50 ár og þið getið lesið gamlar væmnar afmæliskveðjur frá mömmsu.

Ég hlakka til að dansa á öllum litum regnbogans með ykkur út fallega lífið okkar.
Aldrei gleyma hvers verðug þið eruð. Við elskuðum ykkur í fyrra lífi, við elskum ykkur í þessu lífi og munum finna ykkur í næsta. M&P,“ skrifaði Eva.

View this post on Instagram

A post shared by 🌟 Eva Ruza🌟 (@evaruza)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert