Birta nýja mynd af Georg 11 ára

Fjölskyldan árið 2020.
Fjölskyldan árið 2020. AFP

Georg prins fagnar 11 ára afmæli í dag. Í tilefni af því var birt ný mynd af prinsinum sem móðir hans Katrín prinsessa af Wales tók.

Það er hefð í bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni að gefa út nýj­ar mynd­ir af meðlim­um henn­ar á af­mæl­is­dög­um þeirra. Þannig hef­ur verið gef­in út ný mynd af Georg allt frá fyrsta af­mæli hans. Að þessu sinni er myndin tekin í Windsor þar sem þau búa. 

Eftir ljósmyndahneykslið í kringum mæðradagsmynd Katrínar, þar sem hún var sökuð um að hafa átt stórlega við myndina af sér og börnum sínum, hafa hjónin valið að sniðganga fjölmiðla og birta fjölskyldumyndir beint á samfélagsmiðlum. Fjölmiðlar fá þá ekki myndina deginum áður líkt og tíðkaðist fram að því og geta þá bresku blöðin ekki birt afmælismyndir barnanna á forsíðu líkt og hefð var fyrir. Óljóst er hvenær grær um heilt á milli hallarinnar og fjölmiðla hvað myndbirtingar varðar.

Katrín prinsessa tók þessa flottu mynd af Georgi í tilefni …
Katrín prinsessa tók þessa flottu mynd af Georgi í tilefni af 11 ára afmæli hans. Skjáskot/Instagram
Georg þegar hann var sex ára.
Georg þegar hann var sex ára. AFP
Georg prins brosir út að eyrum á fimm ára afmælisdaginn.
Georg prins brosir út að eyrum á fimm ára afmælisdaginn. AFP
Georg prins fjögurra ára gamall.
Georg prins fjögurra ára gamall. AFP
Georg prins þriggja ára.
Georg prins þriggja ára. AFP
Georg litli er á leið í skóla.
Georg litli er á leið í skóla.
Georg prins með Karlottu í fanginu.
Georg prins með Karlottu í fanginu. AFP
Georg eins árs.
Georg eins árs. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert