Eva Laufey umvafin sól og sumaryl

Eva Laufey og Margrét Maren.
Eva Laufey og Margrét Maren. Samsett mynd

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, hefur það náðugt í fæðingarorlofinu. Hún er stödd í Danmörku umvafin sól og sumaryl. 

Matargyðjan varð móðir í þriðja sinn þann 26. maí síðastliðinn, þegar henni og eiginmanni hennar Haraldi Haraldsyni, deildarstjóra Icelandair Cargo, fæddist stúlka. Sú hlaut nafnið Margrét Maren og er hún á ferð með mömmu sinni. 

Eva Laufey deildi sólríkri mynd af þeim mæðgum í fallegum sumarklæðum á Instagram-síðu sinni í dag.

Eva Laufey er íklædd bláum sumarkjól, með ljósa slaufu í hárinu og sólgleraugu. Margrét Maren, sem fagnar þriggja mánaða afmæli sínu á föstudag, hvílir örugg framan á móður sinni í magapoka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert