Ágústa og Unnsteinn gáfu dóttur sinni fallegt nafn

Ágústu og Unnsteinn Manuel.
Ágústu og Unnsteinn Manuel. Skjáskot/Instagram

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og sambýliskona hans, Ágústa Sveinsdóttir vöruhönnuður, eignuðust sitt annað barn fyrr á árinu. Unnsteinn og Ágústu greindu frá gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á Instagram á miðvikudag. Fyrir eiga þau soninn Víking. 

„Dóttir okkar Saga Ximinha Unnsteinsdóttir kom í heiminn 10. maí síðastliðinn. Móður og barni heilsast vel. 

Hún fær nafn ömmu sinnar frá Angola. Ekki biblíunöfnin Ana og Maria heldur afríska nafnið Ximinha. Amma hennar bar aðeins þetta nafn fyrstu 12 ár ævi sinnar þangað til hún var send til Portúgal og tók upp portúgalskt nafn. 

Orðið Ximinha (borið fram Símínja) er úr tungumáli Kimbundu-ættbálksins og kemur af orðinu muxima sem þýðir „hjarta“. Ximinha þýðir því „litla hjarta“, skrifar parið við færsluna. 

View this post on Instagram

A post shared by UNNSTEINN (@unnsteinnmanuel)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert