Þakklát ljósmyndurum fyrir að hlífa dætrunum

Eva Mendes og Ryan Gosling.
Eva Mendes og Ryan Gosling. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Eva Mendes er þakklát ljósmyndurum á Ólympíuleikunum fyrir að virða einkalíf dætra þeirra Ryan Gosling þegar fjölskyldan horfði á úrslit á slá í fimleikum kvenna á dögunum. 

Eva og Ryan eiga tvær dætur saman, Amöndu og Esmeröldu sem eru átta og níu ára. Eva sagðist þakklát fyrir að stelpurnar voru ekki hafðar með á ljósmyndum og andlit þeirra falin. Þau hafa haldið fjölskyldulífinu utan sviðsljóssins undanfarin ár.

„Ég er glöð yfir því að börnin hafi ekki verið með á myndum,“ skrifaði Eva á Instagram. „Flestar síður földu einnig andlit þeirra svo hér er móðir sem er ánægð með það.“

View this post on Instagram

A post shared by Eva Mendes (@evamendes)

Fræga fólkið á Ólympíuleikunum hefur verið myndað í bak og fyrir á götum Parísar og á áhorfendapöllum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert