Benedikt og Eva opinbera nafn sjötta barnsins

Benedikt Brynleifsson og Eva Brink hafa opinberað nafn sonarins.
Benedikt Brynleifsson og Eva Brink hafa opinberað nafn sonarins. Skjáksot/Instagram

Fjölskylda Benedikts Brynleifssonar trommara og Evu Brink fjármálastjóra stækkaði þann 4. júní síðastliðinn þegar þau tóku á móti sínu fyrsta barni saman. Á dögunum var sonur þeirra skírður við fallega athöfn.

Eva opinberaði nafnið í færslu á Instagram-reikningi sínum þar sem hún birti fallega mynd af syni sínum og skírnarkökunni, en drengurinn fékk nafnið Frosti Brink Benediktsson.

View this post on Instagram

A post shared by Eva Brink (@evabrink)

„Litla dýrmæta sameiningarbarnið okkar“

Parið greindi frá því í nóvember síðastliðnum að þau ættu von á barni með fallegri færslu á Instagram. 

„Börnin okkar 6. Litla dýrmæta sameiningarbarnið okkar bætist í hópinn árið 2024 & fullkomnar stóru fjölskylduna okkar,“ skrifuðu þau og birtu mynd af sónarmynd og höndum barnanna þeirra, en þau eru fædd árin 2006, 2010, 2011 og 2014.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim til hamingju með nafnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert