Lífið við það að gjörbreytast

Líf Katie Holmes er að breytast.
Líf Katie Holmes er að breytast. AFP

Hollwyood-stjarnan Katie Holmes er að venjast nýju lífi en dóttir hennar, Suri Noelle, er að flytja að heiman til þess að fara í háskóla. Faðir Suri er leikarinn Tom Cruise en hefur lítið verið til staðar fyrir dóttur sína síðan foreldrarnir skildu árið 2012. 

Suri sem er 18 ára er að hefja nám í Carnegie Mellon University. Hún er sögð hafa bæði áhuga á leiklist og tísku. „Ég er mjög stolt af dóttur minni. Auðvitað sakna ég þess að hafa hana nálægt mér, en ég er stolt af henni og mjög glöð. Ég man hvernig það var að vera á þessum aldri, þessi tími upphafs. Það er spennandi að kynnast sjálfum sér og ég elskaði þennan tíma svo það gerir mig hamingjusama að hugsa til þess,“ sagði Holmes um tímamót dóttur sinnar í viðtali við tímaritið Town & Country

Holmes viðurkennir þó að þetta verði viðbrigði. „Félagar í bókaklúbbnum mínum eiga eftir að verða pirraðir á því að heyra í mér,“ segir Holmes í gríni. Hún er í bókaklúbbi sem hittist aðeins fimm sinnum á ári en það á kannski ekki eftir að nægja þegar einkabarnið er flutt að heiman. Auk þess fer Holmes í danstíma og málar. 

Katie Holmes og dóttir hennar Suri þegar Suri var lítil.
Katie Holmes og dóttir hennar Suri þegar Suri var lítil. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert