Fannst eins og það væri eitthvað að

Zoë Kravitz sér ekki fyrir sér að eignast börn.
Zoë Kravitz sér ekki fyrir sér að eignast börn. AFP/Tolga Akmen

Leikkonan Zoë Kravitz er ekki viss um að hún vilji eignast börn en hún finnur þó fyrir þeirri pressu. Kravitz sem er 35 ára segist margt í sínu lífi vera jafn mikilvægt og börn eru í lífi foreldra. 

„Lengi vel fannst mér eins og það væri eitthvað að mér,“ sagði Kravitz í viðtali við Esquire þegar hún segir frá því að hún sé ekki viss um hvort hana langi í börn. 

„Ég beið eftir því að það kviknaði á þessu ljósi í höfðinu á mér en það gerðist aldrei. Þegar þú ert yngri þá hugsar þú að þú getir ekki eignast börn af því þú ert of ung, það væri brjálæði. En einn daginn ertu ekki of ung lengur, og það væri ekki brjálæði. Ég þurfti að hugsa um hvað ég vildi.“

Tilgangurinn er ekki bara að eignast börn

Hollywood-stjarnan leggur áherslu á að konur hafi meiri tilgang í lífinu en að fjölga mannkyninu. Hún segir barneignir oft breyta lífi fólks og segir hún fólk eigi skilið virðingu fyrir það. Hún biður hins vegar um það sama. 

„Það er mikil pressa á konur að eignast börn, og það er þessi tilfinning að ef þú gerir það ekki þá ertu ekki með tilgang hér. En þessi kvikmynd, mér líður eins og ég hafi fætt barn,“ segir Kravitz og vísar þar með til kvikmyndar sem hún leikstýrði. 

Kravitz var gift leikaranum Karl Glusman í örfá ár eftir langt samband. Hún þurfti hins vegar að hugsa um framtíðina og fóru þau hvort í sína áttina vegna framtíðarhugmynda. Nú er leikkonan í sambandi með leikaranum Channing Tatum sem á eina dóttur. 

Zoë Kravitz er í sambandi með Channing Tatum.
Zoë Kravitz er í sambandi með Channing Tatum. AFP/RODIN ECKENROTH
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert