Börn Kardashian vilja velja kærasta fyrir móður sína

Kim Kardashian segir börnin sín stinga upp á mögulegum ástmönnum.
Kim Kardashian segir börnin sín stinga upp á mögulegum ástmönnum. AFP/ Angela Weiss

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er á lausu og er ekki tilbúin fyrir kærasta. Hún segir hins vegar börnin sín vera tilbúin. Þau komið með nokkrar tillögur sem hafa ekki fallið í kramið hjá stjörnunni. 

Kardashian á fjögur börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kanye West. Yngsta barnið er fimm ára en það elsta 11 ára. Uppástungurnar eiga það sameiginlegt að tengjast áhugamálum barnanna. 

„Þetta er svo fyndið af því að börnin reyna að koma mér á stefnumót,“ sagði Kardashian í spjallþætti Jimmy Kimmel. „Þau eru tilbúin núna en ég er það ekki.“

„Þau eru svo nákvæm. Þau búa til lista,“ sagði Kardashian. „Saint vill að ég sé með hvaða körfubolta- eða fótboltamanni sem er. Ég er bara, ef þú bara vissir. Sum barnanna minna vilja að ég sé með streymisáhrifavaldi,“ segir stjarnan sem segir þó börnum sínum að hana langi ekki í samband eins og er. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert