Eva Dögg ófrísk að fjórða barninu

Eva Dögg Rúnarsdóttir er ófrísk að sínu fjórða barni.
Eva Dögg Rúnarsdóttir er ófrísk að sínu fjórða barni. Skjáskot/Instagram

Jógakennarinn og heilsugúrúinn Eva Dögg Rúnarsdóttir á von á sínu fjórða barni með unnusta hennar, Stefáni Darra Þórssyni. Barnið er annað barn Evu Daggar og Stefáns Darra saman. 

Eva Dögg og Stefán Darri hafa verið saman í sex ár og eignuðust sitt fyrsta barn saman sumarið 2022. Fyrir á Eva Dögg tvö börn úr fyrra sambandi. 

Parið tilkynnti gleðitíðindin í sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallega myndaröð af óléttukúlunni. „Barn númer fjögur,“ skrifuðu þau við myndaröðina. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert