Sævar Breki og Guðrún eiga von á tvíburum

Sævar Breki Einarsson og Guðrún Lóa Sverrisdóttir eiga von á …
Sævar Breki Einarsson og Guðrún Lóa Sverrisdóttir eiga von á tvíburum. Skjáskot/Instagram

Sævar Breki Einarsson, áhrifavaldur og meðlimur hljómsveitarinnar Nussun, og kærasta hans Guðrún Lóa Sverrisdóttir lyfjafræðingur, eiga von á tvíburum. 

Sævar Breki og Guðrún tilkynntu gleðifregnirnar í sameiginlegri Instagram-færslu, en þau héldu kynjaveislu fyrir sína nánustu um helgina þar sem þau komust að því að tvær stúlkur væru á leiðinni. 

Með færslunni birtu þau fallega mynd af sér með sónarmyndir og krúttlega mynd af tveimur kisum með bleika slaufu um hálsinn. „Tvær litlar skvísur ætla að breyta lífinu okkar 2025,“ skrifuðu þau við myndirnar. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert