Katrín Edda fékk óvænta barnasturtu

Katrín Edda Þor­steins­dótt­ir er komin 30 vikur á leið.
Katrín Edda Þor­steins­dótt­ir er komin 30 vikur á leið. Skjáskot/Instagram

Verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir er ófrísk að sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Markus Wasserbaech. Hún fékk óvænta barnasturtu í gær frá sínum nánustu og var í skýjunum með daginn. 

Katrín Edda deildi myndum úr veislunni á samfélagsmiðlum, en af myndum að dæma var hún alsæl með veisluna þar sem meðal annars var boðið upp á girnilegar kræsingar sem vinkonur hennar höfðu útbúið. 

Það styttist óðum í að fjölskylda Katrínar Eddu og Markusar stækki, en hún er gengin 30 vikur á leið. Hjónin tilkynntu kyn barnsins á samfélagsmiðlum þann 10. júní síðastliðinn, en þá birtu þau mynd úr kynjaveislu þar sem þau notuðu reykstöng sem gaf til kynna með bláum reyk að þau ættu von á dreng.

Hjónin eignuðust sitt fyrsta barn, dótturina Elísu Eyþóru, í desember árið 2022. 

View this post on Instagram

A post shared by Katrin Edda (@katrinedda)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert