Vertu til þegar skólinn kallar á þig

Það þarf að vera með allt á hreinu þegar skólinn …
Það þarf að vera með allt á hreinu þegar skólinn hefst á haustin. Ljósmynd/Colourbox

Það er gott að endurnýja fataskápinn og helstu nauðsynjar af og til en þegar börn eru annars vegar er hægt að miða við upphaf skólaársins.

Nýir skór á skólalóðina og nýtt strokleður í pennaveskið er staðalbúnaður sem ekki má gleyma. Það er líka betra að græja þessar nauðsynjar áður en að skólinn og tómstundir byrja á fullu en þá gefst ekki alltaf tími til þess að hanga í búðum þegar allt er komið á fullt. Þá bíður heimalærdómur og annað fjör sem ekki má sleppa.

Góðar og þægilegar buxur eins og þessar rauðu útvíðu buxur …
Góðar og þægilegar buxur eins og þessar rauðu útvíðu buxur eru nauðsynlegar í skólann. Þessar fást í Lindex og kosta 4.899 krónur.
Léttur jakki sem er fullkominn fyrir haustið. Þessi jakki fæst …
Léttur jakki sem er fullkominn fyrir haustið. Þessi jakki fæst í Name It og kostar 8.990 krónur.
Það kemst enginn í gegnum nám án þess að eiga …
Það kemst enginn í gegnum nám án þess að eiga blýanta. Þessir litríku blýantar koma fimm í pakka en þeir fást í Søstrene Grene og kosta 294 krónur.
Mistök eru mikilvægur þáttur í skólagöngu en þá er líka …
Mistök eru mikilvægur þáttur í skólagöngu en þá er líka gott að eiga strokleður. Þetta strokleður fæst í Søstrene Grene og kostar 188 krónur.
Nestið verður betra og skemmtilegra þegar það kemur í flottri …
Nestið verður betra og skemmtilegra þegar það kemur í flottri nestistösku. Þessi fæst í Epal og kostar 4.600 krónur.
Á haustin er of hlýtt fyrir dúnúlpuna og þá getur …
Á haustin er of hlýtt fyrir dúnúlpuna og þá getur verið gott að eiga gott dúnvesti yfir flíspeysuna. Þetta vesti er frá 66°Norður og kostar 22.900 krónur.
Það er nauðsynlegt að eiga góða tösku fyrir skólaveturinn sem …
Það er nauðsynlegt að eiga góða tösku fyrir skólaveturinn sem er að hefjast. Þessi taska frá Herschel fæst í Pennanum og kostar 17.995 krónur.
Það getur verið nauðsynlegt að endurnýja skóbúnaðinn á haustin. Þessir …
Það getur verið nauðsynlegt að endurnýja skóbúnaðinn á haustin. Þessir Nike-skór eru flottir í skólann en þeir fást í versluninni Air og kosta 19.995 krónur.
Flottur peysukjóll frá Molo í skólann fyrir börn sem elska …
Flottur peysukjóll frá Molo í skólann fyrir börn sem elska hesta. Kjóllinn fæst í Englabörnunum og kostar 10.990 krónur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert