Sonur Justin og Hailey Bieber kominn í heiminn

Sonur hefur þegar fengið nafn.
Sonur hefur þegar fengið nafn. AFP/Angela Weiss

Sonur stjörnuhjónanna Just­in og Hailey Bie­ber er kominn í heiminn.

Justin Bieber tilkynnti um fæðingu sonarins á Instagram í nótt. Hann hefur fengið nafnið Jack Blues Bieber.

Bie­ber-hjón­in gengu í hjóna­band árið 2018 eft­ir aðeins tveggja mánaða langa trú­lof­un en héldu form­lega at­höfn árið 2019. Jack Blues Bieber er þeirra fyrsta barn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert