Íris Svava og Arnþór gáfu dóttur sinni nafn

Fallega fjölskyldan á skírnardaginn.
Fallega fjölskyldan á skírnardaginn. Skjáskot/Instagram

Íris Svava Pálma­dótt­ir, þroskaþjálfi og talsmaður já­kvæðrar lík­ams­ímynd­ar, og sambýlismaður hennar, Arnþór Fjalar­son, gáfu dóttur sinni nafn á sunnudag.

Stúlkan kom í heiminn þann 3. maí síðastliðinn og er fyrsta barn parsins. Hún hlaut nafnið Sóldís Hanna.

Íris Svava greindi frá nafngiftinni á Instagram-síðu sinni í gærdag og birti nokkrar myndir frá skírnardeginum.

„Besti sólargeislinn okkar var skírð í dag og fékk nafnið Sóldís Hanna Arnþórsdóttir,” skrifaði Íris Svava við færsluna.

View this post on Instagram

A post shared by Íris Svava (@irissvava)

Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert