Prjónaðu galla á krílið

Haustin eru tíminn til að brydda upp á nýjungum og fitja upp á einhverju nýju. Ef þig vantar eitthvað nýtt á prjónana þá gæti Krílagalli Hjelmås og Steinsland hugsanlega verið eitthvað fyrir þig. Uppskriftina af Krílagallanum er að finna í nýútkominni prjónabók Hjelmås og Stansland sem voru að gefa frá sér prjónabókina Ljúflingar, uppáhaldsföt á yngstu börnin. Bókaútgáfan Forlagið gaf leyfi fyrir birtingu uppskriftarinnar. 

Í bókinni er að finna 70 prjónauppskriftir af fallegum prjónaflíkum á börn frá fæðingu til fögurra ára. Stöllurnar standa að Klompe-LOMPE sem er vefsíða og netverslun og hafa þær notið mikilla vinsælda í Noregi og reyndar út um allan heim. 

Krílagalli

„Við erum ánægðar með Krílahönnunina og höfum lengi ætlað að gera þunnan galla með fallegum laska. Útkoman er sætur galli sem er fullkominn fyrir lúr í vagninum eða innan undir regngallann í leikskólanum,“ segja þær stöllur. 

STIG 2

  • STÆRÐIR (0–1) 3 (6–9) 12 (18) 24 mán
  • GARNTILLAGA KlompeLOMPE Tynn Merinoull, litur 2650
  • GARNÞÖRF (150) 150 (200) 200 (250) 300 g
  • PRJÓNAR Hringprjónar nr. 2,5 og nr. 3, báðir 60 cm og 80 cm
  • PRJÓNFESTA 27 L á prjóna nr. 3 = 10 cm

MÁL

  • Yfirvídd: U.þ.b. (45) 46,5 (52) 56 (59) 63,5 cm
  • Lengd: U.þ.b. (44) 51 (59) 65 (70) 74 cm

Gallinn er prjónaður fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

  • Fitjið upp (77) 77 (83) 89 (89) 93 L á hringprjón nr. 2,5.
  • Prj stroff (1 S, 1 B).
  • Fyrsta umf er á röngu.
  • Í 5. umf er prj hnappagat þannig: Prj 2 L stroffprjón, 2 S saman, sláið upp á prjóninn, prj stroff út umf.
  • Prj alls 9 umf stroff. Skiptið yfir á prjóna nr. 3.
  • Byrjið að prj munstur eftir munsturteikningu og að auka út í laska. Lesið næstu hluta uppskriftarinnar áður en prjónað er áfram. Aukið er út með því að prj bandið á milli lykkjanna snúið S (sjá myndbandið øke mot høyre og venstre á klompelompe.no).

Byrjið á munstri (1. umf) og aukið út fyrir laska þannig:

  • Prj 5 S (= garðar/kantlykkjur), (5) 5 (7) 8 (8) 8 S (= vinstra framstykki), auk 1 L, 11 L munstur (= merki­lykkjur, laski), auk 1 L, (6) 6 (6) 7 (7) 7 S, (= vinstri ermi), auk 1 L, 1 S (= merkilykkja, laski), auk 1 L, (21) 21 (23) 25 (25) 29 S (= bakstykki), auk 1 L, 1 S (= merkilykkja, laski), auk 1 L, (6) 6 (6) 7 (7) 7 S (= hægri ermi), auk 1 L, 11 L munstur (= merkilykkjur, laski), auk 1 L, (5) 5 (7) 8 (8) 8 S = (hægra framstykki) 5 S (= garðar/kantlykkjur) = aukið út um 8 L í umf.
Prjónið áfram munstur yfir munsturlykkjurnar 11 á laskareitunum tveimur að framan. Aukið út á laska í annarri hverri umf á réttu.

Annað er prj með sléttprjóni (S á réttu, B á röngu) fyrir utan listana að framan sem prj eru með garðaprjóni.

Hnappagöt eru gerð með 4,5 cm millibili. Alls eru þau (5) 6 (6) 8 (8) 9 og eru prj þannig: 1 S, 2 S saman, sláið upp á prjóninn, 2 S.

Endurt aukningu á laska alls (16) 17 (19) 21 (23) 25 sinnum.

Næsta umf (rétta): Prj fram yfir miðjulykkju í munstri, setjið ermalykkjur á aukaprjón (5 seinni munsturlykkjurnar meðtaldar), fitjið upp 4 L, prj bakstykkið og laskalykkjurnar 2 á baki, setjið ermalykkjur (þar meðtaldar 5 fyrri munsturlykkjurnar) á aukaprjón, fitjið upp 4 L og prj út umf = (127) 131 (145) 157 (165) 177 L á prjóninum.

Prj slétt (með görðum á listunum) þar til stykkið mælist (27) 30 (34) 37 (40) 42 cm.

Leggið hnappagatalistann yfir tölulistann og prj lykkjurnar saman með því að prj 1 L af fremri prjóni og 1 L af aftari prjóni S saman.

Héðan í frá er prj í hring. Prj 1 umf S.

Lengið bakstykkið þannig: Setjið merki í lykkjuna sem er á miðju baki en þar er miðjan þegar styttar umf eru prj. Prj að miðju baki á gallanum.

  • Str: (0–1) 3 (6–9) mán: Prj 25 S, snúið við, 50 B, snú, 55 S, snú, 60 B, snú, prj S út umf.
  • Str: 12 (18) 24 mán: Prj 30 S, snú, prj 60 B, snú, prj 65 S, snú, 70 B, snú, prj S út umf.
  • Allar str: Setjið merki sitt hvorum megin við miðjulykkjurnar 5 bæði að framan og aftan.
  • Aukið út um 1 L hvorum megin við lykkjurnar 5, bæði að framan og aftan. Endurt í 4. hverri umf alls (4) 4 (4) 5 (5) 6 sinnum.
  • Prj 1 umf S og fellið af lykkjurnar 5, bæði að framan og aftan = (64) 66 (73) 81 (85) 93 L fyrir hvora skálm.

SKÁLMAR

  • Setjið merki í samskeytin. Prj S í hring.
  • Eftir 2 cm er tekið úr þannig: 1 S, 2 S saman, prj þar til 3 L eru að merkinu, 1 Ó, 1 S, steypið Ó yfir, 1 S.
  • Endurt úrtökur með 2ja cm millibili, alls (5) 5 (6) 6 (7) 8 sinnum. Prj þar til skálmin mælist (12) 15 (19) 21 (23) 25 cm.
  • Prj 1 umf S og fækkið lykkjunum í (40) 42 (44) 46 (48) 48 L.
  • Skiptið yfir á prjóna nr. 2,5 og prj (3) 4 (4) 5 (5) 5 cm stroff (1 S, 1 B). Fellið af S og B. Prj hina skálmina eins.

ERMAR

  • Prjónið upp 2 L undir hendi og 1 í samskeytunum, prj lykkjurnar (43) 45 (49) 54 (58) 62 af aukaprjóninum, prj upp 1 L í samskeytunum og lykkjurnar 2 sem eftir eru.
  • Setjið merki í samskeytin.
  • Takið úr eftir 2 cm, 1 L á undan og eftir merkinu.
  • Endurt með 2ja cm millibili þar til (39) 39 (41) 41 (42) 42 L eru á prjóninum. Prj áfram þar til ermin mælist (12) 14 (16) 19 (21) 24 cm (fellið 1 L af í síðustu umf í 4 minni stærðunum). Skiptið yfir á prjóna nr. 2,5.
  • Endið á (8) 8 (10) 10 (12) 12 umf af stroffi og fellið af um leið og síðasta umf er prjónuð.
  • Gangið frá endum, saumið saman undir höndum og saumið saman í skrefið, festið tölur á. Leggið gallann í rakt handklæði eða gufið hann.
Hér er að finna 70 prjónauppskriftir af fallegum prjónaflíkum á …
Hér er að finna 70 prjónauppskriftir af fallegum prjónaflíkum á ungbörn og upp í fjögurra ára.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka