Heitustu feður landsins

Íslenskir feður eru flottir!
Íslenskir feður eru flottir! Samsett mynd

Íslenskir karlmenn eru sko alvöru fjölskyldumenn. Þeir sýna væntumþykju í verki, taka ómældan þátt í uppeldi barna sinna og eru sömuleiðis frábærir, farsælir og fjallmyndarlegir. 

Smartland tók saman lista yfir heitustu feður landsins! 

Þorvaldur Davíð!

Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson á þrjú börn, tvær dætur og son, með eiginkonu sinni Hrafntinnu Karlsdóttur lögfræðingi. Hann er einn af okkar hæfileikaríkustu og öflugustu leikurum enda hefur hann ítrekað slegið í gegn á sviði og á skjánum. Leikarinn er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur, en á síðasta ári gaf hann úr barnabókina Sokkalabbarnir ásamt Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.

Þorvaldur Davíð er með bræðandi bros.
Þorvaldur Davíð er með bræðandi bros. AFP

Arnmundur Ernst!

Leikarinn Arnmundur Ernst B. Björnsson á tvo unga syni með sambýliskonu sinni, Ellen Margréti Bæhrenz dansara og leikkonu. Arnmundur fékk leik- og sönghæfileikana í vöggugjöf en móðir hans er Edda Heiðrún Backman heitin. 

Arnmundur Ernst Backman er fallegur og hæfileikaríkur.
Arnmundur Ernst Backman er fallegur og hæfileikaríkur. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Arnar Freyr!

Tónlistarmaðurinn Arnar Freyr Frostason, annar helmingur dúettsins Úlfur Úlfur, á tvö börn, dóttur og son, ásamt eiginkonu sinni Sölku Sól Eyfeld Hjálmarsdóttur tónlistarkonu. Arnar, eða Arnar Úlfur eins og hann er jafnan kallaður, hefur vakið mikla athygli fyrir tónlist sína í gegnum árin. 

Arnar Freyr Frostason ásamt syni sínum.
Arnar Freyr Frostason ásamt syni sínum.

Valur Freyr!

Leikarinn Valur Freyr Einarsson hefur lengi þótt með fallegustu karlmönnum á Íslandi. Hann er mikill fjölskyldumaður, enda fjögurra barna faðir og afi. Valur Freyr er kvæntur Ilmi Stefánsdóttur leikmyndahönnuði. Hjónin hafa verið saman frá því að þau voru 21 árs gömul. 

Valur Freyr er afskaplega hlýr og brosmildur.
Valur Freyr er afskaplega hlýr og brosmildur. Ljósmynd/Eggert Jóhannesson

Bjarki Már!

Bjarki Már Elísson, einn færasti handknattleiksmaður landins, er algjör stelpupabbi. Hann á tvær ungar dætur með eiginkonu sinni, Unni Ósk Steinþórsdóttur. Bjarki Már er búsettur í Veszprém í Ung­verjalandi og varð fyrr á árinu ung­versk­ur meist­ari í hand­knatt­leik þegar lið hans sigraði Pick Sze­ged á úti­velli í öðrum úr­slita­leik liðanna.

Það er aldrei leiðinlegt að fylgjast með Bjarka Má á …
Það er aldrei leiðinlegt að fylgjast með Bjarka Má á vellinum. mbl.is/Brynjólfur Löve

Logi Pedro!

Tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson er tveggja barna faðir. Hann eignaðist son með sambýliskona sinni, Hall­veigu Hafstað Har­alds­dótt­ur, í ágúst 2021. Dreng­ur­inn er fyrsta barn þeirra sam­an en fyr­ir á tónlistarmaðurinn son­inn Bjart. Logi hef­ur komið víða við í tón­list­ar­heim­in­um síðustu ár og var meðal ann­ars liðsmaður í hljóm­sveit­inni Retro Stef­son. Auk þess hef­ur hann unnið með tón­listar­fólki á borð við Emm­sjé Gauta, Loah og liðsmönn­um GusGus.

Logi Pedro er algjör töffari.
Logi Pedro er algjör töffari. Ljósmynd/Aðsend

Pedro Gunnlaugur Garcia

Rithöfundurinn Pedro Gunnlaugur á einn son úr fyrra sambandi. Pedro hefur vakið fádæma athygli fyrir skrif sín en bókin Lungu þótti meistaraverk og hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2022. 

Pedro Gunnlaugur Garcia
Pedro Gunnlaugur Garcia Haraldur Jónasson/Hari

Víkingur Heiðar Ólafsson

Píanósnillingurinn Víkingur Heiðar á tvo stráka. Víkingur er mikill smekkmaður sem þekktur er fyrir klassískan klæðaburð. Hann er kvæntur Höllu Oddnýju Magnúsdóttur sem einnig er þekkt úr menningarlífinu og bera þau viðurnefnið „ofurpar“ með sóma. Með tvo unga stráka má draga þá ályktun að líf og fjör ríki á þessu mikla tónlistarheimili. 

Víkingur Heiðar Ólafsson
Víkingur Heiðar Ólafsson mbl.is/Einar Falur

Sverrir Norland

Sverrir Norland er rithöfundur og tveggja barna faðir. Honum er mjög annt um allt sem viðkemur velferð barna og beitt sér að því hvernig efla má læsi barna. Hann hefur meðal annars gefið út flottar barnabækur á vegum eigins forlags, Am bókaforlags. Hann er kvæntur hinni frönsku þokkadís Cerise Fontaine sem einnig hefur unnið með honum að útgáfumálum.

Sverrir Norland.
Sverrir Norland. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ragnar Helgi Ólafsson

Ragnari Helga er margt til lista lagt. Hann er myndlistarmaður og skáld og hannar auk þess allar heitustu bókakápurnar á íslenska markaðnum. Þá hefur hann oftar en einu sinni verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hann er einnig virkur í íslensku tónlistarsenunni en hann er í hljómsveitinni Geirfuglunum. Hann á þrjú börn.

Una Ragnarsdóttir og Ragnar Helgi Ólafsson
Una Ragnarsdóttir og Ragnar Helgi Ólafsson Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka