Ingó veðurguð eignaðist stúlku

Ingó veðurguð er orðinn tveggja barna faðir.
Ingó veðurguð er orðinn tveggja barna faðir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, og kærasta hans Alexandra Eir Davíðsdóttir eignuðust dóttur þann 31. ágúst síðastliðinn. Stúlkan er annað barn parsins saman, en fyrir eiga þau einn son sem kom í heiminn í október 2022. 

Ingó og Alexandra opinberuðu samband sitt sumarið 2021. Ingó greindi svo frá því að hann væri að verða faðir í þinghaldi vegna dómsmáls hans gegn Sindra Þór Sigríðarsyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í maí 2022, en hann stefndi Sindra fyrir ummæli sem hann hafði um Ingó ári áður þegar tónlistarmaðurinn var sakaður um kynferðisbrot. 

Í mars síðastliðnum greindu Ingó og Alexandra svo frá því að fjölskyldan myndi stækka í sameiginlegri færslu á Instagram. 

Parið tilkynnti svo komu stúlkunnar í fallegri færslu á Instagram. „31.08.24 bættist litla systir loksins í hópinn. Hjartað stækkaði um nokkur númer. Stóri bróðir er mjög spenntur og stoltur,“ skrifuðu þau í færslunni.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert