Sigvaldi og Nótt eignuðust dreng

Sigvaldi Guðjónsson og Nótt Jónsdóttir eignuðust son.
Sigvaldi Guðjónsson og Nótt Jónsdóttir eignuðust son. Skjáskot/Instagram

Handboltakappinn Sigvaldi Björn Guðjónsson og fyrrverandi knattspyrnukonan Nótt Jónsdóttir eignuðust son á dögunum. Drengurinn er annað barn parsins saman. 

Sigvaldi og Nótt eignuðust sitt fyrsta barn í september 2022, soninn Jökul. Þau greindu svo frá því að þau ættu von á sínu öðru barni í apríl síðastliðnum. 

Parið tilkynnti komu drengins í sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallega mynd af syninum. „Fullkomin viðbót við fjölskylduna,“ skrifuðu þau í færslunni. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert