Jóndís og Hallgrímur eiga von á öðru barni

Hallgrímur og Jóndís eiga einn dreng sem verður tveggja ára …
Hallgrímur og Jóndís eiga einn dreng sem verður tveggja ára í byrjun næsta árs. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan og ljósmyndarinn Jóndís Inga Hinriksdóttir og knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Már Bergmann eiga von á öðru barni. Fyrir eiga þau dreng sem fæddist í janúarmánuði á síðasta ári. Verða því um það bil tvö ár á milli barnanna.

„Stóri bróðir á nýju ári,“ skrifa foreldrarnir undir mynd af syni sínum þar sem hann heldur á sónarmynd. Fjölskyldan er búsett á Akureyri og spilar Hallgrímur fótbolta með KA í Bestu deildinni. Jóndís er dugleg að deila myndum af fjölskyldulífinu og fallegu íbúðinni sem þau búa í.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju með fréttirnar!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert