Sigvaldi og Nótt opinbera nafn sonarins

Sigvaldi Guðjónsson og Nótt Jónsdóttir eignuðust nýverið son.
Sigvaldi Guðjónsson og Nótt Jónsdóttir eignuðust nýverið son. Skjáskot/Instagram

Handboltakappinn Sigvaldi Björn Guðjónsson og fyrrverandi knattspyrnukonan Nótt Jónsdóttir eignuðust sitt annað barn á dögunum. Nú hafa þau opinberað nafn sonarins. 

Drengurinn er annað barn parsins saman, en fyrir eiga þau soninn Jökul sem kom í heiminn í september 2022. Þau greindu frá því að þau ættu von á öðru barni í apríl síðastliðnum.

Nótt opinberaði nafn sonarins í færslu á Instagram-reikningi sínum, en drengurinn fékk nafnið Funi Sigvaldason. 

„Í dag er vika síðan litli prinsinn okkar kom í heiminn og fullkomnaði fjölskylduna. Hann lét alls ekki bíða eftir sér og mætti rúmum þrem vikum fyrir settan dag, algjörlega tilbúinn, stór og sterkur. Seinustu dagar hafa farið í það að kynnast honum og lífinu sem fjögurra manna fjölskylda, ásamt því gera og græja það sem ekki var klárt enda bjuggumst við alls ekki við honum svona snemma,“ skrifaði hún við fallega mynd af feðgunum. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert