Egill og Íris opinbera nafn dótturinnar

Egill Fannar Halldórsson og Íris Freyja Salguero Kristínardóttir eignuðust dóttur …
Egill Fannar Halldórsson og Íris Freyja Salguero Kristínardóttir eignuðust dóttur í júní. Ljósmynd/Úr einkasafni

Athafnamaðurinn Egill Fannar Halldórsson og fyrirsætan Íris Freyja Salguero Kristínardóttir eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 26. júní síðastliðinn. Nú hafa þau opinberað nafn dótturinnar. 

Stúlkan fékk nafnið Maya Sól Alguero Egilsdóttir, en parið tilkynnti nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram og birtu með henni fallegar myndir af dóttur sinni. „Fallega litla sólin okkar,“ skrifuðu þau við færsluna.

Festu kaup á raðhúsi í Garðabæ

Egill og Íris kynntust árið 2022 og kolféllu hvort fyrir öðru. Íris sagði nýverið frá aðdraganda þungunar dóttur þeirra, fósturmissi, meðgöngunni og fæðingunni í einlægu viðtali á fjölskylduvef mbl.is.

Það er nóg um að vera hjá nýbökuðu foreldrunum um þessar mundir, en þau festu nýverið kaup á glæsilegu 243 fm raðhúsi í Garðabæ.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert