Þetta eru bestu fjölskylduhótelin í Portúgal

Á listanum finnur þú fimm frábær hótel fyrir fjölskyldufólk.
Á listanum finnur þú fimm frábær hótel fyrir fjölskyldufólk. Samsett mynd

Portúgal hefur verið vinsæll áfangastaður að undanförnu meðal Íslendinga, ekki síst meðal fjölskyldufólks. Landið býður upp á ljúft veðurfar, töfrandi strendur og heillandi borgarstemningu og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Ferðasérfræðingarnir á Condé Nast Traveller tóku á dögunum saman bestu fjölskylduhótelin í Portúgal, en hótelin eiga það sameiginlegt að henta fjölskyldufólki sérstaklega vel en eru um leið fallega hönnuð og bjóða upp á skemmtilega afþreyingu. 

Noah Surf House Portugal

Þetta hótel er staðsett í Santa Cruz með dásamlegu útsýni yfir ströndina og til sjávar. Þar finnur þú skemmtilegar kojur sem virðast vera umkringdar ævintýralegum frumskógi, en kojurnar hitta beint í mark hjá yngstu kynslóðinni. Þá er nóg af afþreyingu í boði á hótelinu, allt frá brimbrettakennslu yfir í hjólagarð.

Ævintýraleg hönnun hótelsins hefur vakið lukku.
Ævintýraleg hönnun hótelsins hefur vakið lukku. Ljósmynd/Booking.com

Outpost – Casa das Arribas

Fögur bygging sem hýsir Outpost – Casa das Arribas-hótelið var reist á fjórða áratug síðustu aldar af áhrifamiklum portúgölskum arkitekt að nafninu Raul Lino. Fagurfræði hótelsins er einstök, en þar finnur þú einnig tennis- og körfuboltavöll, líkamsræktarstöð, sundlaug og heilsulind – þeir sem eru í stuði geta einnig fengið að láni hjólabretti og brimbretti.

Sögulegur sjarmi fylgir hótelinu.
Sögulegur sjarmi fylgir hótelinu. Ljósmynd/Booking.com

Praia do Canal 

Hótelið Praia do Canal er sannkölluð paradís fyrir ævintýraglaða gesti á öllum aldri. Einstakt landslag umlykur hótelið og býður upp á ótal afþreyingu, til dæmis hjólreiðaferðir um stíga sem liggja í gegnum skóginn.

Það ætti engum að leiðast á þessu hóteli.
Það ætti engum að leiðast á þessu hóteli. Ljósmynd/Booking.com

Sublime Comporta

Fólk virðist fara á hægara tempó um leið og það kemur inn á Sublime Comporta-hótelið, enda eru ró og notalegheit í fyrirrúmi þar og ekki erfitt að slaka á. Það þurfa þó ekki allir að vera í rólegheitum á hótelinu þar sem fjölbreytt afþreying er í boði, enda umlykur falleg náttúra hótelið og getur auðveldlega breyst í gríðarstóran leikvöll.

Rólegt andrúmsloft er yfir þessu fagra hóteli.
Rólegt andrúmsloft er yfir þessu fagra hóteli. Ljósmynd/Booking.com

São Lourenço do Barrocal

Í portúgölsku sveitinni Alentejo stendur glæsilegt lúxushótel sem býr yfir miklum sjarma. Þar getur þú upplifað alvöru portúgalska sveitastemningu beint í æð, hvort sem það er í hestaferð um akra í kringum hótelið eða í skoðunarferð með býflugnabónda á svæðinu.

Þeir sem vilja upplifa alvöru portúgalska sveitastemningu ættu að heimsækja …
Þeir sem vilja upplifa alvöru portúgalska sveitastemningu ættu að heimsækja þetta hótel! Ljósmynd/Booking.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert