Cardi B orðin þriggja barna móðir

Cardi B birti fallega myndaseríu frá fæðingardeildinni.
Cardi B birti fallega myndaseríu frá fæðingardeildinni. Samsett mynd

Tónlistarkonan Belcalis Marlenis Almánzar, best þekkt undir listamannsnafninu Cardi B, eignaðist sitt þriðja barn á dögunum með fyrrverandi eiginmanni sínum Kiari Kendrell Cephus, eða Offset.

Hún tilkynnti um fæðingu barnsins á Instagram-síðu sinni í gærdag, í færslu þar sem hún sést meðal annars með nýfætt barn sitt í fanginu.  

Er þetta þriðja barn hinnar 31 árs gömlu Almánzar. Hún opinberaði óléttu sína í byrjun ágúst með færslu á samfélagsmiðlasíðum sínum. Daginn áður sótti hún um skilnað frá eig­in­manni sínum og gaf það út að hún vilji ekki að hann taki þátt í uppeldi þriðja barnsins. 

View this post on Instagram

A post shared by Cardi B (@iamcardib)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert