Dóttir Leifs og Hugrúnar komin með nafn

Leifur Andri Leifsson og Hugrún Elvarsdóttir ásamt dóttur sinni.
Leifur Andri Leifsson og Hugrún Elvarsdóttir ásamt dóttur sinni. Skjáskot/Instagram

Knattspyrnumaðurinn Leifur Andri Leifsson og Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, eignuðust dóttur þann 19. júlí síðastliðinn. 

Stúlkan er fyrsta barn parsins saman og fékk hún nafn í fallegri skírnarathöfn um helgina. 

„Erla Margrét Leifsdóttir. Dásamlegur dagur með okkar nánustu þar sem litla ljós var skírð í höfuðið á báðum langömmum sínum & frænku sinni sem er jafnframt alnafna hennar,“ skrifuðu Leifur og Hugrún í sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallegar myndir frá deginum. 

Leif­ur spil­ar með HK í Bestu deild karla í knatt­spyrnu og hef­ur verið fyr­irliði og lyk­ilmaður fé­lags­ins um langt ára­bil. Hug­rún starfar sem verk­efna­stjóri hjá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins á sam­keppn­is- og efna­hags­sviði. Hugrún spilaði einnig fótbolta í efstu deild í tíu ár, en á ferli sínum lék hún með Stjörnunni, FH og ÍH.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by @hugrune

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert